Jóladagur
IS

Hvað er langt til jóla?

Jólin ganga í garð eftir

  • 49daga
  • 22klukkustundir
  • 19mínútur
  • 38sekúndur

Aðfangadagur, 24. desember, kl. 18:00 að íslenskum tíma.

    Aðventukransinn bíður fyrsta sunnudags í aðventu.

    • Spádómakertið
    • Betlehemskertið
    • Hirðakertið
    • Englakertið

    Jólasveinarnir þrettán

    Þeir koma til byggða einn af öðrum, þrettán nætur fyrir jól. Stekkjastaur kemur fyrstur aðfaranótt 12. desember og Kertasníkir síðastur á aðfangadag. Síðan halda þeir heim í sömu röð, sá fyrsti á jóladag og sá síðasti á þrettándanum, 6. janúar.

    1. 1

      Stekkjastaur

      12. desember

      Stirður í hnjánum og laumast í fjárhúsin til að sjúga ærnar, með misjöfnum árangri.

    2. 2

      Giljagaur

      13. desember

      Felur sig í giljum og smeygir sér í fjósið til að stela froðunni ofan af mjólkinni.

    3. 3

      Stúfur

      14. desember

      Minnstur bræðranna og hnuplar pönnum til að ná sér í brunnar skófir.

    4. 4

      Þvörusleikir

      15. desember

      Mjór eins og þvara og sleikir þvörurnar hreinar þegar enginn sér til.

    5. 5

      Pottaskefill

      16. desember

      Bíður þar til börnin eru kölluð frá og skefur þá leifarnar úr pottunum.

    6. 6

      Askasleikir

      17. desember

      Liggur undir rúmi og hrifsar askinn um leið og hann er lagður á gólfið.

    7. 7

      Hurðaskellir

      18. desember

      Skellir hurðum um miðja nótt svo heimilisfólkið hrekkur upp af værum blundi.

    8. 8

      Skyrgámur

      19. desember

      Brýtur lokið af skyrtunnunni og étur þangað til hann stendur á blístri.

    9. 9

      Bjúgnakrækir

      20. desember

      Klifrar upp í rjáfrið og krækir sér í bjúgun sem hanga þar í reyknum.

    10. 10

      Gluggagægir

      21. desember

      Gægist inn um gluggana og skimar eftir einhverju girnilegu til að hnupla.

    11. 11

      Gáttaþefur

      22. desember

      Með nef sem þefar uppi laufabrauðið langar leiðir, jafnvel í mesta skammdeginu.

    12. 12

      Ketkrókur

      23. desember

      Rennir löngum krók niður um strompinn á Þorláksmessu og krækir í hangikjötið.

    13. 13

      Kertasníkir

      24. desember

      Eltir börnin á aðfangadag og sníkir kertin þeirra, því ljósin eru það fallegasta sem hann veit.

    Um Jóladag

    Lítil síða fyrir tilhlökkunina.

    Jóladagur er persónuleg síða: ein niðurtalning, kertin fjögur á aðventukransinum og jólasveinarnir þrettán. Engin skráning, engar vefkökur og ekkert sem truflar. Bara dagarnir sem eftir eru og ljósin sem kvikna eitt af öðru. Arís frá Tölvuaðstoð fylgist með úr horninu.

    Í minningu föður míns, Ólafs Jónssonar, sem var jólabarn í orðsins fyllstu merkingu, fæddur 19. desember, og Gaflari. Ábendingar og góðar jólaminningar eru velkomnar á [email protected].

    Spurt og svarað

    Hvað er langt til jóla?
    Niðurtalningin efst á síðunni sýnir hvað er langt til jóla í dögum, klukkustundum, mínútum og sekúndum. Talið er að kl. 18:00 á aðfangadag, 24. desember, þegar jólin ganga í garð á Íslandi.
    Hvenær koma jólin?
    Á Íslandi ganga jólin í garð klukkan 18:00 á aðfangadag, 24. desember. Þá hefst aðfangadagskvöld og jólin standa fram á þrettándann, 6. janúar.
    Hvenær koma jólasveinarnir til byggða?
    Stekkjastaur kemur fyrstur, aðfaranótt 12. desember. Síðan kemur einn á hverri nóttu þar til Kertasníkir kemur síðastur, aðfaranótt aðfangadags.
    Hvenær fara jólasveinarnir aftur heim?
    Þeir halda heim í sömu röð og þeir komu. Stekkjastaur fer fyrstur á jóladag, 25. desember, og Kertasníkir síðastur á þrettándanum, 6. janúar.
    Hvenær er fyrsti sunnudagur í aðventu?
    Aðventan hefst fjórum sunnudögum fyrir jól. Fjórði í aðventu er síðasti sunnudagur fyrir jóladag og fyrsti í aðventu er þremur vikum fyrr, alltaf á bilinu 27. nóvember til 3. desember.
    Hvað heita kertin á aðventukransinum?
    Spádómakertið, Betlehemskertið, Hirðakertið og Englakertið. Kveikt er á einu nýju kerti hvern sunnudag í aðventu, svo öll fjögur loga á fjórða sunnudegi.